Sjúkraþjálfarar Táp leitast við að:
Fyrirbyggja verki í stoðkerfi líkamans, vöðvum og liðum
Bæta liðleika, styrk og hreyfifærni.
Bjóða upp á fyrirbyggjandi meðferð.
Hvernig er best að komast í tíma hjá sjúkraþjálfurum Táps?
Til að komast í sjúkraþjálfun er gott að hafa beiðni frá lækni en hægt er panta í tíma og komast í skoðun og fá þá beiðni síðar sé þess þörf.
Hægt er að panta tíma í síma 564 5442. Einnig er hægt að panta tíma eða senda fyrirspurn á netinu.
Hvað er gert í fyrsta tíma?
Í fyrsta tíma hjá sjúkraþjálfara er tekin saga, framkvæmd skoðun og vandamálið greint. Því næst er sett upp meðferðaplan og í framhaldinu hefst meðferð.
Æskilegt er að skjólstæðingurinn taki virkan þátt í henni.
|